Sunnudagur, 15. mars 2009
126 dagar
Við Sigga fórum í hressandi 12 km hjólatúr í dag. Það var frábært enda 126 dagar síðan ég hjólaði síðast. Enn og aftur er ég búinn að missa allt rassasigg og var farinn að þeytast í ra..... já þið vitið hvar :-)
Tenglar
Mínir tenglar
- Heimasíða Magga Bergs Hér er allt um hjólreiðar, td greinar um vetrarhjólreiðar, ferðast á hjóli, viðgerðir og viðhald og bara allt.
- Up in Alaska Jill er með frábæra hjóla blogg síðu, hellingur af linkum á aðrar góðar síður.
- Fjallahjólaklúbburinn
- Hjólaklúbburinn Voffi
- Hjólreiðafélag Reykjvíkur
- Hjólamenn Hjólreiðafélagið sem ég er í.
Athugasemdir
Gott að hjóla frá Kópavogi.
HP Foss, 15.3.2009 kl. 22:12
Já upp í Mosó.
steinimagg, 17.3.2009 kl. 15:02
Djö.... kraftur er í ykkur!
Hlynur Már Hreinsson (IP-tala skráð) 18.3.2009 kl. 08:59
Ég keypti extra mjúkan hnakk í Markinu, núna líður mér bara eins og ég sitji í lazyboy heima í stofu þegar ég er að hjóla. Skil ekki af hverju hjól koma með svona pyntingartæki í stað almennilegs hnakks. Fyrst voru svona hnakkar markaðssettir sem kvenmannshnakkar, en karlmenn voru ekki lengi að fatta að þetta eru einfaldlega þægilegri hnakkar, allir karlmenn í vinnunni hjá mér komnir á svona.
Þú hefðir bara átt að skipta og fá hjólið hennar Siggu lánað á heimleiðinni ;)
Hjóla-Hrönn, 18.3.2009 kl. 14:11
Ekki finnst mér gott að vera með mjúkan og breiðan hnakk, hann þarf að vera frekar mjór og alls ekki of mjúkur en ég er að sjálfsögðu alltaf í hjólabuxum með púða og frekar vönduðum buxum. Sigga keypti sér vandaðan kvenn hnakk í Köben um árið, hann er nú ekki breiður og er bara mjúkur á réttum stöðum hún er líka alltaf í púðabuxum.
Ég hef nú grun um að hjólið mitt sem er með dempara að framan og aftan sé nú ekki eins hast og Siggu hjól :-)
steinimagg, 18.3.2009 kl. 21:25
Fallegar þessar sokkabuxur sem þið notið á hjólunum.
HP Foss, 23.3.2009 kl. 23:18
Þær eru ekki bara flottar, það er líka gott að vera í þeim :-)
steinimagg, 24.3.2009 kl. 20:16
Dem it, að ég skuli þora að láta sjá mig opinberlega í lummó rúmfatalagers flísbuxum!
Ég hef bara áhyggjur af því að flæða yfir alla Miklubraut ef ég fer að bæta við auka-púðum í buxurnar, þ.e. til viðbótar við mína náttúrulegu.
Þegar ég verð "lítil" ætla ég að fara inn í hjólabúð og fjárfesta í alvöru hjólafatnaði. Þá þarf ég kannski ekki að dröslast um með hægindastól á hjólinu
Hjóla-Hrönn, 26.3.2009 kl. 14:03
Frábært að þú ert kominn af stað aftur.... nú þarf ég að fara að rifja upp hvernig á að stíga á pedalana til skiptis...
Amason, 2.4.2009 kl. 23:37
Bæta við athugasemd [Innskráning]
Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.