Leita í fréttum mbl.is

Límband

Það er alveg ótrúlegt hvað sumir einfaldir hlutir geta verið magnaðir.

Ég var búinn að vera með stanslausa fjandans verki í hérna hvað heitir það nú, olnbogabótinni. Ég var að verða geðveikur á öllum verkjatöflunum sem ég þurfti að taka. Ég vældi um þetta við stórsnillinginn sjúkraþjálfarann minn og hann setti upp alveg sértakan svip, það er "nú er ég að hugsa voða voða mikið svipurinn".

Hann velti þessu eitthvað fyrir sér og kom á endanum með límbandsrúllu, he he nú hélt ég að hann væri alveg endanlega orðinn ruglaður eða eitthvað, hann sá eitthvað á svipnum á mér og sagði að þetta væri sko ekkert grín, þetta er til að minnka bólgurnar, hjálpar við að losa um þær og verkirnir ættu þá að minnka, ég botnaði ekkert í hvað ann vara að fara og sagði bara "jááá einmitt".  Á límband að laga þetta, glætan spætan, ekki hafði ég mikla trú á því en sagði ekkert upphátt. Jæja límbandið var sett á eftir kúnstarinnar reglum og ég mátti fara.

Þetta var sett á föstudaginn síðasta eða fyrir viku. Hvað haldið þið, þetta fja.. ég meina dásamlega límband virkar, þræl virkar. Ég fann strax mun erfir tvo daga og enn meiri eftir þrjá og gat minnkað verkjatöflurnar tveimur dögum eftir og hætt alveg með þær sterku fjórum dögum síðar, ótrúlegt en satt.

Það er nú ekki amalegt að vera bæði límdur og negldur, snilli :-)

sjukralim.jpg


« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: HP Foss

Já! magnað. Það fer nú að halla undan fæti hjá lyfjafyrirtækjum ef límbandið verður það sem virkar.

kv

Helgi

HP Foss, 18.12.2008 kl. 23:06

2 Smámynd: Hólmfríður Bjarnadóttir

Þetta er frábært og virkilega fróðlegt. Það eru ekki alltaf stóru hlutirnir sem skipta mestu.

Hólmfríður Bjarnadóttir, 18.12.2008 kl. 23:17

3 Smámynd: Guðmundur St. Valdimarsson

Þetta er klárlega málið líma mann og annan í stað þess að dæla eitruðum lifjum í fólk með allskonar aukaverkunum og skít. Mikið til af stórsniðugu stuffi sem maður hefur aldrei heyrt um t.d. í homopadiu, mamma lét mig fá einhverjar kúlur eftir að ég var skorinn og bættur, sagði mér að setja þetta undir tunguna og láta þetta leysast upp þar. Gera þetta fjórum x á dag og allt mundi lagast mun fyrr. Og viti menn það gekk eftir Arnika 200 allra meina bót. Ég trúi á svona vegna þess að ég veit að þetta virkar.

Guðmundur St. Valdimarsson, 18.12.2008 kl. 23:44

4 Smámynd: Þórdís Einarsdóttir

Allt er nú hægt, ég segi það nú bara! En gott þér líður betur.

Þórdís Einarsdóttir, 19.12.2008 kl. 13:10

5 Smámynd: Amason

Frábært að þetta virkaði vel fyrir þig, þetta er alveg magnað, þetta hlýtur að vera alveg spes límband til að ná að tolla... 3M eitthvað.. :-P

Amason, 30.12.2008 kl. 13:17

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Höfundur

steinimagg
steinimagg
Með allskonar dellu

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband